Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Þrusu stollt móðir

Vá ég held að ég hafi aldrei verið jafn stolt af honum syni mínum. Á laugardag vöknuðu við Kristján fór í vinnuna og ég vaknaði með litla og hann fór að horfa á Sveppa þarna á stöð 2. Svo var komin tími til að skipta á honum, en ég setti bleyjuna ekki aftur á hann þannig núna er hann farin að pissa og kúka í klósettið :) Algjör foringi :) Ég er ýkt stolt móðir...

 

En vá hvað ég stend með bílstjórum í dag þekki nokkra. Svo sem bróðir minn og pabba og unnusta hahahahaha nema hvað bróðir minn alltaf fremstur á víglínu með bílinn sinn :) Ef ég hefði lent í að þurfa stoppa í smá stund og keyra hægt  smá við útaf mótmælum hefði ég gert það með fúsum og frjálsum vilja :) vil ekki láta taka mig í þurrt takk fyrir!!!  

 

Oh ég verð að leyfa ykkur að heyra nýja gegjaða lagið mitt sem ég elska núna og gæti hlustað á oft

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband